Hér á bæ er mexíkóskur snakkmatur vinsæll, sérstaklega í lok vikunnar. Ef heimasætan mætti ráða væri hann á borðum annan hvern dag og toppar nánast pizzuna hjá henni. Oftast vefjum við öllu inn í pönnukökurnar, hakki eða kjúklingabitum með grænmeti, salsasósu og flögum eins og gengur og gerist. Hér kemur aðeins önnur útfærsla með sama hráefni, köllum það bara mexíkópizzu.
-
Ingibjörg.
Mexíkópizza
4 litlar tortillakökur settar á ofnplötu
1 msk hreinn rjómaostur á hverja köku
1 msk kryddrjómaostur á hverja köku
2 msk mild salsasósa á hverja köku
2 kjúklingabringur
1 msk olía
2 tsk mexíkósk kryddblanda
- Skerið í litla bita, steikið á pönnu og kryddið.
- Setjið á pönnukökurnar og stráið rifnum osti of muldum flögum yfir.
- Bakið í ofni við 200°C í 10-12 mínútur eða þar til osturinn hefur tekið lit.
- Berið fram með fersku grænmeti og Doritos (okkur finnst svarta best )með salsasósu.
Einfalt og fljótlegt - góðar stundir.